Einkaneysla drifkraftur vaxtar

Nýlegar upplýsingar sýna hægari vöxt ferðaþjónustunnar sem eru upplýsingar sem gefa tilefni til að ætla að enn hægi á hagvextinum.

Hvaða þýðingu hefur þetta þegar horft er fram  við?

Um þetta fjallar frétt á vef Samtaka atvinnulífsins (SA).  

Minni hagvöxtur er áætlanir stjórnvalda gera ráð fyrir hlýtur að hafa áhrif á fjármálaáætlun stjórnvalda. Gagnrýni SA á núverandi áætlun hefur falist í því að það sé óábyrgt að treysta á lengsta og kröftugasta hagvaxtarskeið Íslandssögunnar án þess að búa í haginn fyrir hugsanlegan samdrátt.

Áætlanir stjórnvalda gera ráð fyrir svo litlum afgangi í rekstri ríkissjóðs á næstu árum að lítið má út af bregða. Verði hagvöxtur næstu ára endurskoðaður niður á við  -  sem verður að teljast líktlegt  -  mun afgangurinn hverfa áður en langt um líður.

Það er því áhyggjuefni að stjórnvölda hafa ekki nýtt síðustu ár til að búa í haginn fyrir lakari tíð.

Og í staðinn eytt nánast hverri krónu samfara miklum tekjuauka ríkissjóðs.

Ljóst er að stjórnvöld geta ekki treyst á að vöxtur tekna ríkissjóðs haldi áfram í sama takti og verið hefur undanfarin ár.

 

[email protected]