Vöntun er á einkafjárfestum sem veita skráðum íslenskum félögum örugga forystu í góðu samstarfi við stofnanafjárfesta eins og lífeyrissjóði, vátryggingarfélög og aðra söfnunarsjóði. Það er ein af ástæðum mikillar velgengni Marels á seinni árum að sögn Helga Magnússonar fjárfestis sem hefur nú gefið út endurminningabókina Lífið í lit. Hann hefur átt sæti í stjórn Marels síðustu 14 ár.
„Samsetning hluthafahóps Marels hefur reynst félaginu gríðarlega mikilvæg og hún hefur verið mjög ólík þeirri samsetningu sem hefur einkennt mörg önnur skráð fyrirtæki á markaðinum hér heima eftir hrun,“ segir Helgi í samtali við Markaðinn og nefnir að Eyrir hafi verið kjölfestufjárfestir í Marel frá árinu 2005. Síðan þá hafi velta félagsins nífaldast, EBIT-afkoma sextánfaldast og nettóhagnaður tuttugufaldast í evrum talið.
„Það hefur víða skort forystu í hluthafahóp skráðra félaga eins og til dæmis Icelandair þar sem einkafjárfestar hafa því miður lítið fjárfest á seinni árum.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/markadurinn/einkafjarfestar-urfa-a-lata-til-sin-taka