Hávær umræða hefur skapast um þörfina á að stækka þjóðarleikvang Íslendinga í Laugardal, en hann tekur einungis tíu þúsund manns í sæti - og eru iðulega löngu uppseld á völlinn þegar íslenska karlalandsliðið etur þar kappi við andstæðinga sína.
KSÍ og ríkjandi stjórnvöld hafa óformlega rætt um stækkun Laugardalsvallar að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag, en þar er sagt frá því að nýtt keppnisfyrirkomulag á Evrópumóti landsliða sem hefst árið 2018 gerir ráð fyrir því að leikdagar verði m.a. yfir vetrartímann á Íslandi þegar aðstæður til knattspyrnuiðkunar utandyra eru slæmar.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ segir við blaðið að bregðast þurfi við þessu með yfirbyggðum velli, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag. Samhliða telur hann að bæta þurfi við stúkuplássi svo fleiri komist á völlinn. Eins telur hann heppilegt að einkaaðilar komi að því að stækka Laugardalsvöll og að þar gæti verið ýmis þjónusta á borð við hótel eða veitingastaði.
Illuga Gunnarssyni menntamálaráðherra líst vel á að einkaaðilar komi að framkvæmd á vellinum, en telur jafnframt að vert sé að gefa gaum að hinu breytta leikfyrirkomulagi þar sem leikið verður yfir vetrartímann: \"Ég held að það væri afar óheppilegt ef við værum í þeirri stöðu með landsliðin okkar að þau gætu ekki leikið heimaleiki sína á Íslandi,“ segir Illugi við blaðið.