\"Menn eiga að velta fyrir sér í fullri alvöru hvort einkaaðilar eigi að einhverju eða öllu leyti að koma að þeim nýju flugvallarfjárfestingum sem við blasa og byggja á viðskiptalegum forsendum.\"
Þetta segir Þorsteinn Pálsson í niðurlagi nýjasta pistils síns á hringbraut.is sem fjallar um niðurstöðu Rögnuskýrslunnar svonefndu um framtíðaruppbyggingu innanlandsflugvallar á höfuðborgarsvæðinu.
Sem kunnugt er taldi nefndin hagkvæmast að reisa nýjan flugvöll í Hvassahrauni sunnan Hafnarfjarðar en kostnaður við hann er talinn vera minnst 22 milljarðar króna, sem samkvæmt athugun nefndarinnar er álíka kostnaður og hlytist af breytingum á núverandi flugvelli í Vatnsmýrinni. Þá er reyndar ótalinn kostnaður við vegalagningu til og frá vellinum í Hvassahrauni, en hugmyndir hafa verið uppi um að tengja hann beint við miðborg Reykjavíkur með vegalagningu út fyrir Hafnarfjörð og Garðabæ og yfir Skerjafjörðinn.
Hugmyndir Þorsteins Pálssonar um einkarekstur innanlandsflugvallar eru nýjar af nálinni hér á landi, en þekktar utan úr heimi, svo sem í grennd við höfuðborgir sem draga til sín mikla flugumferð.