Einhver veit hver á dekhill advisors

Aðkoma Hauck & Aufhäuser að kaup­unum á 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum, rannsóknarskýrsla um þá aðkomu og eftirstandandi ósvaraðar spurningar eru viðfangsefni sjónvarpsþáttar Kjarnans í kvöld. Kjartan Bjarni Björgvinsson sem sat í rannsóknarnefnd um sölu hlutarins er gestur þáttarins.

„Ég held að það sé öllum morg­un­ljóst að það er ein­hvers staðar fyrir hendi vit­neskja um hver eigi þetta félag. En stóra spurn­ingin er hvort sá eða sú það veit stíga fram og upp­lýsa það.“ Þetta segir Kjartan Bjarni Björg­vins­son, sem sat í nefnd sem rann­sak­aði aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á 45,8 pró­­sent hlut í Bún­­að­­ar­­bank­­anum í jan­úar 2003. 

Félagið sem Kjartan talar um er Dek­hill Advis­ors Limited, sem fékk 2,9 millj­arða króna greidda árið 2006 vegna bak­samn­inga sem gerðir voru við kaup­in. Þetta kemur fram í nýjasta þætti Kjarn­ans á Hring­braut, þar sem kaupin á Bún­að­ar­bank­anum og rann­sókn á þeim eru til umfjöll­un­ar. Þátt­ur­inn er frum­sýndur klukkan 21:30 í kvöld.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­inn­ar­segir að allar líkur standi til þess að „Kaup­­þing sjálft eða aðilar því tengdir hafi verið raun­veru­­legir eig­endur Dek­hill Advis­ors eða notið þeirra fjár­­muna sem þangað runn­u“. Allir stjórn­endur og starfs­menn Kaup­þings sem komu að mál­inu hafa hins vegar neitað að hafa hagn­ast fjár­hags­lega á því í svörum sínum til nefnd­ar­inn­ar.

Kjartan segir að þetta sé ekki full­yrð­ing um hverjir eig­end­urnir séu, enda liggi að honum vit­andi ekki fyrir neinar skýrar og afdrátt­ar­lausar upp­lýs­ingar um hver eigi félagið né hverjir hafi notið hags­bóta af þeim fjár­munum sem þangað fóru. „ Það er kannski næsta verk­efni ykkar fjöl­miðla­manna og fleiri aðila úti í þessu sam­fé­lagi að upp­lýsa um það.“

 

Stjórnendur Kjarnans eru Þórður Snær Júlíusson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.