"Ég er nú búinn að vera nokkur lengi í fjölmiðlum og minnist þess ekki að eingöngu konur skipi gestalistann í svona þjóðmálaþætti," segir Páll Magnússon um nýjasta þátt sinn Þjóðbraut sem er á dagskrá Hringbrautar klukkan 20.00 í kvöld.
"Þetta er ekki síst sérstakt fyrir þær sakir að umræðuefnin eru kjaradeilur, pólitísk átök og stóriðja sem þóttu, að minnsta kosti á mínum fyrri árum í fréttamennsku, vera nokkuð karllæg mál," bætir hinn reynslumikli fjölmiðlamaður við.
Og konurnar sem hér um ræðir eru Þórunn Sveinbjarnardóttir nýkjörinn formaður Bandalags háskólamanna sem ræðir hörkuna sem nú er uppi í kjaramálum þjóðarinnar, Katrín Jakobsdóttir formaður VG og Ragnheiður Ríkharðsdóttir formaður þingflokks sjálfstæðismanna sem ræða heiftina og illindin sem einkenna þingstörfin nú um stundir og loks Terry Jester forstjóri Silicor sem brátt reisir 400 manna stóriðju á Grundartanga í Hvalfirði.
Þjóðbraut Páls er sem fyrr segir frumsýnd klukkan 20.00 í kvöld.