Einföldun regluverks

Félag atvinnurekenda (FA) segir í bréfi félagins til Bjarna Benediktsson forsætisráðherra að tilhneiging sé hjá ráðuneytum að bæta íþyngjandi kvöðum við lagafrumvörp. Þetta séu frumvörp til innleiðingar samkvæmt ákvæðum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eða EES-samningurinn. 

Nefnir FA að nýjasta og skýrasta dæmið um þessi vinnubrögð séu drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um rafrettur. Þetta er kallað að“gylla“ regluverk. FA bendir á að ríkisstjórnin hafi ekki sett sér stefnu um einföldun regluverks atvinnulífsins. Ekki séu heldur ákvæði um slíkt í stjórnarsáttmálanum.  

Nánar www.atvinnurekendur.is