\"Sjálfstæðismenn spyrja hvaðan peningarnir eigi að koma. Svarið við því er einfalt: Uppboð á veiðiheimildum.\" Þetta skrifar hagfræðingurinn Jón Steinsson á fésbók sína í tilefni af efasemdum sjálfstæðismanna um að hægt sé að auka fjármagn til heilbrigðismála.
Eins og fram kemur í öðrum fréttum Hringbrautar í gær hafa sjálfstæðisþingmennirnir Brynjar Níelsson og Jón Gunnarsson gagnrýnt undirskriftasöfnun Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar og segja óraunhæft að auka mjög fjárstreymi í málaflokkinn í þeim mæli sem Kári vill. Hann hefur nefnt Svíþjóð þar sem fyrirmynd, þar sé 11% af landsframleiðslu varið í heilbrigðismál, hér sé hlutfallið aðeins 8,7%.
Hringbraut hefur reiknað það út að þessi prósentuaukning þýðir 50 milljarða króna innspýtingu í heilbrigðiskerfið frá því sem nú er, eða sem nemur nærri árskostnaði við rekstur Landspítalans.
Og nú er þessi peningur fundinn, að því er Jón Steinsson bendir á í fyrrnefndri færslu.
Spurningin er bara sú hvort sjálfstæðisþingmennirnir vilja svona frjálsræði í sjávarútvegi.