Einfaldur fótbolti er ekki gamaldags

Guðjón Þórðarson, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, segir að einfaldur fótbolti sé ekki gamaldags. Sömu lögmál gildi nú og áður.

Landsliðið undir stjórn Guðjóns vann marga frækna sigra og var hársbreidd frá því að komast á úrslitamót Evrópumeistaramótsins. Ein mistök dugðu til að svo varð ekki.

Guðjón verður meðal gesta Sigurjóns M. Egilssonar í fyrramálið og þar verða rifjuð upp úrsit og sögur af ferli Guðjóns með landsliðið, ÍA, KA og KR.