„einfaldlega farið með fleipur og getgátum kastað fram“

Edda Elísabet Magnúsdóttir sjávarlíffræðingur hefur líkt og Hvalaskoðunarsamtök Íslands gagnrýnt ummæli Sverris Daníels Halldórssonar líffræðings Hafrannsóknastofnunar um að hvalaskoðunarbátar gætu verið ástæðan fyrir því að fjölda grindhvala rak á land í Garðskagafjöru um helgina.

Á Facebook-síðu sinni vísar Edda til fréttar RÚV um málið, þar sem haft var eftir Sverri: „Svo frétti ég af hópi [hvala] sem var inni í Faxaflóanum, sem var sennilega þessi hópur, og það voru sex hvalaskoðunarskip í kringum hann. Þannig að mér finnst nú ekki ólíklegt að það gæti líka truflað þau. Sem sagt hávaði frá skipum.“

Edda segir að þarna sé um verulega óvarlegan fréttaflutning að ræða. „Það eru fjölmörg dæmi þess að grindhvali reki á land hér og þar í heiminum, jafnvel þar sem hvalaskoðun er mikil. En þrátt fyrir töluverðar rannsóknir finnast engin skýr dæmi um það að hvalaskoðun sé um að kenna,“ segir hún.

„Í þessu samhengi vil ég þó taka fram að rannsóknir hafa sýnt að verulega mikill hávaði frá bátum minnkar þá fjarlægð sem hvalirnir geta átt í samskiptum um allt að 50-60% en ruglar ekki áttunarskyn þeirra líkt og tekið er fram í fréttinni. Einnig skiptir tíðnisvið þess hljóðs sem berst frá bátunum miklu máli og á hvaða tíðni mesti styrkurinn liggur. Þessi áhrif minnka því nær sem hvalirnir eru hvorum öðrum og því ætti grindhvalatorfa, sem var þarna í þéttum hópi líkt og þeim er tamt, að geta átt í samskiptum þrátt fyrir bátaumferð,“ útskýrir Edda.

Hún segir að ef óvarlega er siglt í kringum dýrin með ógnandi hætti geti þau hræðst og flúið sem svo gæti leitt til hvalreka ef þeir flýja inn á grynningar. „En það er vitað mál að þannig keyra hvalaskoðunarbátar að jafnaði ekki í kringum hvalina. Þó svo einhverjir geti bent á einn og einn svartan sauð í þeim hópi er alrangt að bendla hvalaskoðunarfyrirtækin að fullkomlega óígrunduðu máli við þessa atburði.“

„Það eru fjölmargar ástæður sem geta leitt til hvalreka af þessu tagi. Því miður leitumst við gjarnan eftir einföldum og skýrum svörum frá fréttamiðlum, þannig tapa fréttirnar oft sannleiksgildi sínu. Sú lenska hefur leitt til þess að höfuðáhersla er hér lögð á ansi langsótta athugasemd í fréttinni. Með þessari fyrirsögn er einfaldlega farið með fleipur og getgátum kastað fram án nokkurs stuðnings vísindanna,“ segir Edda að lokum.

Áður höfðu Hvalaskoðunarsamtök Íslands sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Sverris og tekið í sama streng og Edda.  

Í yfirlýsingunni var lýst yfir furðu á vangaveltum Sverris um að svo kunni að vera að hvalaskoðunarbátar hafi átt þátt í því að grindhvalir syntu á land við Garð á Reykjanesi síðastliðinn föstudag.

„Það er ábyrgðarhluti að fulltrúi Hafrannsóknastofnunar skuli setja slíkt fram á opinberum vettvangi án þess að geta stuðst við vísindi eða rannsóknir máli sínu til stuðnings,“ sagði meðal annars í yfirlýsingu samtakanna.

Yfirlýsingu Hvalaskoðunarsamtaka Íslands í heild sinni má lesa hér: