Einfaldasta uppskrift í heimi

Allir vita að banani sem virðist vera þokkalega þroskaður að morgni getur verið orðinn grútlinur að kvöldi og harla ólystugur að sjá. En þessi ein trefjaríkasta og hollasta afurð náttúrunnar á það ekki skilið að fara óétin í ruslið.

Hér kemur ráðið; búið til bananakex samkvæmt einföldustu uppskrift í heimi, en innihaldið eru tveir þroskaðir bananar og einn bolli af hörfræjum. Hrærið vel saman, mótið kúlur og fletið þær aðeins út eins og smákökur

Bakið við 170 gráður í 20 - 25 mínútur. 

Verði ykkur að góðu og njótið með þeim sem ykkur þykir vænt um.