Þann fyrsta janúar 2001 voru einbúar 26,8% skráðra íbúa á landinu, en fyrsta janúar síðastliðinn voru 31,3% landsmanna ein á báti, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Það er hækkun um fjögur og hálft prósentustig að því er fram kemur á vef RÚV sem fjallar um málið í dag.
Á þessum árum fjölgar landsmönnum öllum um ríflega 16 af hundraði, frá því að vera 283.361, upp í 329.100. Þeim sem eru skráðir einir í heimili fjölgar hins vegar um rúmlega 35 af hundraði á þessu sama tímabili, úr 76.061 árið 2001 upp í 103.013 þann 1. janúar 2015.
Hlutfall eins manns heimila er hærra Reykjavík en á flestum stöðum öðrum og hefur einnig hækkað meira en víða annarstaðar á þessu tímabili. Í ársbyrjun 2001 bjuggu 31,7 af hverjum hundrað Reykvíkingum einir með sjálfum sér, en þann 1. janúar 2015 voru það ríflega 36 af hverjum hundrað. Meðal íbúa á höfuðborgarsvæðinu öllu var hlutfall einbúa 28,4% fyrir fimmtán árum, en var orðið 32,6% um áramótin síðustu. Hlutfall þeirra sem af einhverjum ástæðum búa út af fyrir sig utan höfuðborgarsvæðisins hefur einnig hækkað umtalsvert, úr því að vera 24,3% íbúa árið 2001 í það að vera 29,1% þann fyrsta janúar 2015.