Einbreiðar brýr vandamál

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra eru sammála um að einbreiðar brýr séu sérstakt vandamál í vegakerfi landsins. Þetta segja þau innt eftir viðbrögðum við banaslysinu að Núpsvötnum.

Í samtali við Mbl.is segir Katrín að sérstaklega hafi verið rætt um slíkar brýr í tengslum við samgönguáætlun sem er nú til meðferðar á Alþingi. Vegakerfið hafi mætt afgangi eftir hrun og mikil uppsöfnuð þörf sé á framkvæmdum. Í ár hafi fyrstu skrefin verið stigin með því að setja fjóra milljarða til viðbótar við það sem áður hafði verið áætlað í framkvæmdir og úrbætur.

Sigurður Ingi tekur í sama streng í samtali við RÚV og segir banaslysið varpa ljósi á brýna þörf þess að fækka einbreiðum brúm og að flýta vegaframkvæmdum. Hann segir að ný samgönguáætlun kveði á um að gera átak í þessum efnum. Einnig verði óskað eftir því að Vegagerðin fari yfir öryggisþætti eins og vegrið þar sem sum þeirra séu af eldri stöðlum og að það sé áhyggjuefni, bætir Sigurður Ingi við.

Bæði benda þau á að mikil umferðaraukning hafi átt sér stað um Suðurlandsveg á síðustu árum og bendir Katrín sérstaklega á þátt aukins fjölda ferðamanna í því.