Einbreiðar brýr bara austanlands

Einu einbreiðu brýrnar sem enn er að finna á hringveginum um Ísland er að finna austanmegin á landinu, en þær eru 40 að tölu, þar á meðal sú sem liggur yfir Hólá þar sem mjög alvarlegt bílslys var um helgina sem kostaði einn lífið og slasaði fimm.

Athygli vekur að engin einbreið brú er á þjóðvegi 1 frá Reykjavík allt vestur og norður um land til Skjálfandafljóts í Suður-Þingeyjarsýslu. Ein einbreið brú er svo á leiðinni yfir Möðrudalsöræfin til Egilsstaða, sú sem þverar Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði, en að Egilsstöðum slepptum byrjar ballið: Hartnær 40 einbreiðar brýr eru á suðaustanverðu landinu, einkum og sér í lagi í Skaftafellssýslunum þar sem fyrrgreinda slysabrú er að finna, en þegar komið er til Víkur er engar einbreiðar brýr lengur að finna á leiðinni hringinn í kringum landið til Reykjavíkur.

Allar einbreiðar brýr hringvegarins er því að finna suðaustanvert á landinu, en ástæðan er óljós.

Alls eru 684 einbreiðar brýr í vegakerfinu sem Vegagerðin annast, þar af 197 þar sem hámarkshraði er 90 km á klst. Að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag ætlar Vegagerðin að verja allt að hálfum öðrum milljarði til breikkunar brúa á þjóðvegunum fram til ársins 2022.