Einblínt á fáar atvinnugreinar

Páll Kr. Pálsson iðnrekandi er fjarri sáttur með hversu illa er tekið á upprunamerkingu iðnvara. Hann segir að fyrirtæki sitt, Varmi, neyðist til að loka verksmiðjun sinni á Akureyri þar sem nánast ógerlegt er að keppa við ullarvörur sem framleiddar eru í Asíu og þær merktar þannig að neytendur telja þær vera íslenskar.

Páll segist hafa talað fyrir daufum eyrum stjórnvalda sem honum virðist fyrst og síðast gæta hagsmuna landbúnaðar, sjávarútvegs og orkufreks iðnaðar.

Mestu munar um launakostnaðinn, en launakostnaður í Kína sé rétt um fimmtungur þess hann er hér á landi.