Einar segir Íslendingum að dempa væntingarnar fyrir HM: Vörnin í hakki

Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður á Rúv og fyrrum hornamaður íslenska handboltalandsliðsins, telur að það sé mögulega kominn tími til að draga úr kröfum á íslenska karlalandsliðið og bætti við að varnarleikur liðsins væri í molum.

Strákarnir okkar mættu Þýskalandi í æfingaleik ytra í dag og töpuðu með tveimur mörkum. Ísland vann leik liðanna í gær með einu marki.

„ Þurfum mögulega að dempa væntingarnar fyrir HM hressilega. Vörnin er í algjöru hakki og með slaka vörn og markvörslu verður þetta mikið basl.“