„Málsvörn tveggja Miðflokksmanna virðist nú byggja á því að þingkona úr röðum Samfylkingarinnar hafi reynt við þá, annan eða báða, á balli fyrir mörgum árum. Ekki er vitað um sannleiksgildi þess, þótt það sé svo að ef maður setur sig í hennar spor, virki það ótrúverðugt.“
Þetta segir Einar Kárason rithöfundur. Einar er einnig varaþingmaður Samfylkingarinnar og tók hann sæti Ágústs Ólafs Ágústssonar. Ágúst Ólafur fór í leyfi fyrir að hafa beitt Báru Huld Beck, blaðamanns á Kjarnanum, grófu kynferðislegu áreiti. Ágúst Ólafur hefur að vísu ekki þurft að svara fyrir sín brot hjá siðanefnd alþingis og mun ekki þurfa að gera, ólíkt Miðflokksmönnunum sem Einar Kárason hjólar nú í á Facebook-síðu sinni.
Einar Kárason gagnrýnir málflutning þeirra Gunnars Braga Sveinssonar og Bergþórs Ólasonar en sá síðarnefndi sagði m.a. í andmælabréfi sínu að það væri „alveg galin staða að vera útmálaður sem gerandi þegar raunin hafi verið þveröfug. Sakaði Bergþór Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur um að áreita sig kynferðislega á balli. Um þetta segir Einar Kárason:
„Hinsvegar er ekki hægt að hugsa sér meiri ræfil- eða aumingjadóm en að fara að væla og kalla slíkt kynferðislega áreitni opinberlega löngu síðar. Er ekkert eftir sem heitir karlmennska?“
Fjölmargir tjá sig á Facebook-síðu Einars. Brautryðjandinn Anna Kristjánsdóttir segir:
„Annar þeirra hringdi í hana og bað hana afsökunar á orðum sínum og viðurkenndi að þetta hefði verið karlagrobb. Nú er hann búinn að snúa við blaðinu.“
Þá segir Hinrik Ólafsson leikari: „Þetta eru plebbar sem við hin með almenna siðferðiskennd eigum ekki að eiða orðum í. Plebbar tala sig sjálfir í kaf!“ Þráinn Bertelsson rithöfundur skrifar: „Að fara í Miðflokkinn í leit að karlmennsku er eins og að fara í geitarhús að leita ullar. Þetta eru asnar, Einar.“ Þá segir Björgvin G. Sigurðsson fyrrverandi ráðherra:
„Fullkomlega forkastanlegt af þeirra hálfu. Svívirðilegur ræfildómur.“