Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV-samtakanna á Íslandi, skrifaði opið bréf til hjúkrunarheimilis Grundar, sem birtist á Facebook-síðu hans í dag. Á heimilinu dvelur eiginmaður hans Stig Vandetoft, sem glímir við Alzheimer.
Í bréfi sínu kallar Einar eftir því að fólk fái að hitta ástvini sína á heimilinu og bendir á að bæði aðstandendur og skjólstæðingar heimilisins séu margir hverjir búnir að fá veiruna.
„Þetta er komið gott. Vinsamlega opnið hurðir. Að aðstandendur búnir að fá covid og bólusetningar skuli ekki geta komið og sinnt sínu fólki. Flestir búnir að fá covid á deildinni og þar með talinn Stig en enginn alvarlega veikur!“ segir Einar.
Hann segir Grund biðja um skilning ástvina, en segist snúa því dæmi við og biður um að sér verði sýndur skilningur. Þá segist hann ætla að heimsækja eiginmann sinn á morgun.
„Þið biðjið um skilning ástvina eftir einangrun síðustu tvö árin, mig langar að snúa þessu við, sýnið okkur skilning.
Ég ætlast til að hitta Stig minn á morgun, eftir tæpar tvær vikur í þessari lotu einangrunar.“
Í lok færslu sinnar minnist Einar á eina frétt frá deginum í dag sem passar vel inn í umræðu hans. „Elísabet Englandsdrottning 95 ára, er með covidsýkingu, hún er í vinnunni í dag.“ segir hann.