Einar már ræddi uppáhaldsbækur

Einn ástsælasti rithöfundur þjóðarinnar, Einar Már Guðmundsson mætti í lestrarhestaþáttinn Bókin sem breytti mér í gærkvöld og greindi þar frá þeim ritverkum sem standa huga hans næst.

Í þættinum er gestum fengið það verkefni að velja þrjár bækur sem hafa haft mikið áhrif á líf þeirra frá því þeir byrjuðu að lesa á unga aldri. Einar er vitaskuld vel lesinn maðurinn, enda er það partur af starfi hana að lesa allskyns bækur.

Í þættinum fjallaði Einar Már um skáldið Sigfús Daðason sem hafði mikil áhrif á hann á unga aldri, ævisögu Jóns eldklerks sem hann sagði eina merkilegustu heimild um fyrri tíma sögu þjóðarinnar - og svo dró hann upp úr pússi sínu ritverk um Jörund Hundadagakonung sem hann hefur haft mikið á milli handanna síðustu árin, enda kom nýjasta bók hans, Hundadagar út í gær og hefur að geyma sögu Jörundar sem er langtum merkilegri og fjörlegri en Íslendingar hafa almennt gert sér grein fyrir.

Bókin sem breytti mér er á dagskrá Hringbrautar á fimmtudagskvöldum klukkan 20:30, en fjörlegt samtal skáldbræðranna Sigmundar Ernis og Einars Más má einnig sjá hér.