Það verður engum orða vant í þjóðmálaþættinum Ólöfunum á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld en þar munu hagfræðistjórnendur þáttarins ekki einasta greina mál líðandi stundar heldur og fá til sín áhugaverða gesti.
Einn helsti og vinsælasti rithöfundur þjóðarinnar, Einar Már Guðmundsson er fyrsti gestur Arnarsonar og Ísleifssonar og skimar yfir sviðið eins og honum er einum lagið, en þjóðmálarýni skáldsins hefur oft og tíðum verið skörp og skemmtileg.
Þá setjast nöfnurnar Katrín Júl og Jak í betri sætin hjá köppunum, en varaformaður Samfylkingarinnar og formaður Vinstri grænna munu einnig leggja dóm sinn á árið sem senn er að líða.
Ólafarnir eru klukkustundarlangir í kvöld - og hefjast á slaginu 21:00.