Einar Kárason, rithöfundur og Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar rifust í gær á Facebook um nýútkomna ævisögu Friðriks Þórs Friðrikssonar, sem Einar skrifaði. Titill bókarinnar Með sigg á sálinni virtist eitt helsta umræðuefni þeirra.
„Hér á feisbúkk hafa menn í dag fjasað af litlu viti um ævisögu Friðriks Þórs, og meðal annars að titillinn sé stolinn frá Ólafi Thors, sbr þetta frá Guðmundi Andra:,“ segir Einar og birtir því næst texta frá Guðmundi sem furðar sig á titlinum.
„Ég skil ekki alveg titilinn heldur; vissulega hefur Frikki orðið fyrir margvíslegum áföllum um sína daga - og margoft risið á ný - en þegar Ólafur Thors talaði um að hann væri kominn með sigg á sálina vísaði hann til þess að illt umtal sem stjórnmálunum fylgir, slúður og níð hefði ekki áhrif á sig enda væri hann „kominn með sigg á sálina“. Þarna hefur snjöll líking verið tekin traustataki án mikillar umhugsunar,\" sagði Guðmundur um bókina.
Einar segir þetta misskilning, líkingin sé ekki sótt til Ólafs heldur Shakespeares: „Reyndar er það svo að Frikki heldur mikið upp á leikritið Hamlet, sem margir kannast við, og sótti líkinguna þangað:
„Fyrsti grafari grefur og syngur.
Hamlet: Er karlinn öldungis kærulaus við verk sitt? hann syngur meðan hann tekur gröf!
Hóras: Vaninn hefur þæft honum sigg á sálina.“
Það er einkennilegt ef ekki má vitna í Sjeikspír án þess að fá leyfi til þess frá Thórsættinni,“ segir Einar þá í lok færslunnar.
Guðmundur svarar Einari í athugasemd við færsluna: „Jæja, þá er maður orðinn að „Thórsættinni“. Það er alltaf viss áfangi í samræðum. Athugasemdir mínar við bókina snerust að vísu hvorki um þetta né Askenasí, og það veistu jafn vel og ég, Einar Kárason.“ Og Einar svarar fyrir sig: „Bíddu, hver dró Thórsættina inn í þessa umræðu? Sár yfir að einhverju væri stolið frá frænda?“
Páll Baldvinsson, blaðamaður og bókmenntafræðingur, blandaði sér þá í leikinn og reyndi að stilla til friðar. „Æ strákar mínir, Guðmundur AndriThorsson, Einar Kárason, ekki vera að þessu þvargi, báðir svo þráir sem þið eruð. Mér er ekki skemmt að sjá til ykkar,“ sagði hann við færslu Einars. Og orðin hafa kannski haft áhrif á þá félaga því hvorugur hefur tjáð sig meira um málið síðan í gær.