Einar: hræðslan við gretu! – „er bara hún sjálf og engum háð“

„Greta Thunberg er umtöluð og barátta hennar fyrir aðgerðum í loftslagsmálum vakið verðskuldaða athygli um allan heim. Er bara hún sjálf og engum háð. Ótrúlegt að fylgjast með því að svo ung manneskja nær að hafa þetta mikil og víðtæk áhrif á afstöðu fólks.“

Á þessum orðum hefst pistill Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings, sem hann birti á Facebook-síðu sinni í gær.

Þar segir hann að þegar höggvið er nærri hagsmunum og talað fyrir róttækum hugmyndum bregðist hagsmunaaðilar og aðrir sem trúa ekki á loftslagsvánna ókvæða við. „[Þ]á hryktir í eins og sagt er. Í stað þess að ræða málið og boðskapinn eru margir sem beita „gömlu“ aðferðinni og hjóla beint í Grétu. Ætla sér að skjóta sendiboðann!“

Hann segir að þrjú sjónarmið heyrist oftast:

„1. Hún er of ung og barnalega klædd. Þess vegna á ekki að taka mark á henni.

2. Greta er misþroska og með „greiningar“ sem geri hana eins og hún er.

3. Henni er stýrt af óþekktum öflum sem hafa misjafnt í hyggju.“

Einar segir að fleira sé tínt til en að þessi sjónarmið séu þau vinsælustu á meðal þeirra sem gagnrýna hana.

Greta siglir um þessar mundir til Bandaríkjanna þar sem henni hugnaðist ekki það mikla kolefnisfótspor sem flug frá Svíþjóð myndi skilja eftir sig. „Greta er enn eftir því sem ég best veit á skútu út á Atlantshafi á leið til Bandaríkjanna, sjálfri sér samkvæm í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur,“ segir hann.

Einar segir að þrátt fyrir mótlæti láti Greta ekki deigan síga. Þvert á móti virðist hún einungis tvíeflast. „Hún heldur áfram að skipuleggja föstudagsmótmælin komandi vetur um allan heim og er með eftirsóttustu fyrirlesurum á fundum og þingum valdastofnana.“

„Greta er einfaldlega áhrifavaldur sem segir hlutina umbúðalaust og án allra málalenginga. Hún hefur t.a.m. verið mjög gagnrýnin á samþykktir ríkja og borga um „Neyðarástand“ í loftslagsmálum þar sem greinilegt sé að hugur fylgir ekki máli!“ segir hann að lokum.