Einar Hannesson fyrrverandi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi í gærkvöldi. Einar veiktist af krabbameini árið 2013. Einar var ráðinn aðstoðarmaður Sigríðar Á. Andersen þáverandi dómsmálaráðherra í febrúar 2018 en hann hélt fullri starfsorku lengstan hluta veikinda sinna. Einar var 48 ára gamall þegar hann lést.
Bróðir Einars, Grétar Hannesson segir í minningarorðum um bróður sinn:
„Hann lét krabbameinið ekki stöðva sig, sigldi um heimsins höf, stundum einsamall og stundum með vinum. Hann reisti stórt sumarhús nánast einn síns liðs, þó að ég vilji ekki gera lítið úr þeirri miklu hjálp sem pabbi veitti honum við bygginguna. Hann ferðaðist víða og hafði unun af því að koma til nýrra staða og takast á við ný viðfangsefni. Hann kom að fyrirtækjarekstri, starfaði við lögmennsku og tók að sér mikilvæg störf sem aðstoðarmaður ráðherra.
Öll þessi lífsorka og framtakssemi blindaði okkur samferðamönnum hans og þeim sem næst stóðu ef til vill sýn. Við töldum að krabbameinið yrði hugsanlega sigrað eða að það myndi liggja í leyni árum saman.
Breyting varð hins vegar á í haust þegar Einar byrjaði að finna fyrir veikindum og lokabaráttan hófst.“