Einn helsti sagnameistari Íslendinga á seinni árum, Einar Kárason verður gestur Sigmundar Ernis Rúnarssonar í Mannamáli á Hringbraut í kvöld og gerir þar upp Sturlungatímann sem hann hefur skrifað svo eftirminnilega um.
Einar lokaði sagnahringnum sínum um Sturlungaöldina á síðasta ári með Skálmöld, en þar á undan höfðu bækurnar Óvinafagnaður, Ofsi og Skáld komið út um sama efni sem er Íslendingum raunar svo hugleikið að þaðan er sjálfsmynd þeirra fengin. Einar segir að þessi tíma sé landsmönnum sínum álíka mikilvægur og endurreisnartímabilið sé Ítölum; á þessum tíma hafi orðið til allt það sem síðar hafa skipt svo miklu máli í þjóðarvitund okkar, sagnagáfu og tungutaki.
Einar ræðir einnig ungdómsár sín þegar hann var hvað erfiðastur og enginn gat að því er virtist verið með honum á skólabekk sakir þess hversu ófriðlega Einar lét innan veggja rúðustrikaðs kerfsins, en þar á eftir ræða þeir Sigmundur Ernir um tilurð Eyjabókanna og fara aukheldur mikinn um einkenni Íslendinga sem virðast aldrei getað hugsað fram í tímann og þrífast best á bjargbrúninni. Þar eru lýsingar skáldsins á þjóð sinni vægast sagt kostulegar.
Þátturinn er frumsýndur klukkan 20.00 í kvöld.