Einar gerir upp geirfinnsmálið

Sígildur Mannamálsþáttur er á dagskrá Hringbrautar í kvöld, en þar ræðir Sigmundur Ernir við Einar Bollason um þann hræðilega tíma þegar hann var saklaus maðurinn dreginn inn í Geirfinnsmálið ásamt þremur öðrum mönnum - og sat mánuðum saman í einangrun.

Þátturinn vakti mikla athygli á sínum tíma þegar hann var fyrst sýndur á Hringbraut, enda gerir Einar þar upp samskipti sín og Erlu systur sinnar Bolladóttur á einstaklega einlægan og opinskáan hátt, en ræðir þess utan af slíku hispursleysi um þennan dimma kafla ævi sinnar að áhorfendur hreinlega límast við opinskátt samtal þeirra Sigmundar Ernis.

Þessi endursýndi Mannamálsþáttur er á dagskrá klukkan 21:00 í kvöld.