Einar geir er látinn

Einar Geir Þorsteinsson er látinn. Einar fæddist 7. ágúst 1930 á Vatnsleysu í Biskupstungum. Hann lést 27. júní 2019. Eiginkona Einars Geirs er Ingveldur Björg Stefánsdóttir, f. 2. apríl 1936. Greint er frá andláti Einars í Morgunblaðinu. Hann var bæjarfulltrúi fyrir Framsóknarflokkinn um árabil.

Einar Geir ólst upp á Vatnsleysu í Biskupstungum. Hann flutti síðar til Reykjavíkur og síðar í Garðabæ. Einar Geir var framkvæmdastjóri samvinnufélagsins Hreyfils 1971 til 1989. Þá starfaði hann í heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu 1989 til 1990. Einar Geir starfaði sem starfsmannastjóri Heilsugæslunnar í Reykjavík frá 1991 og þar til hann lét af störfum sökum aldurs á árinu 1999.

Einar Geir var formaður Ungmennafélags Biskupstungna um árabil. Hann var formaður Karlakórsins Fóstbræðra 1969 til 1974 og formaður Kötlu, sambands sunnlenskra karlakóra, 1977 til 1981.

\"\"Einar Geir var bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Garðabæ 1978 til 1990 og formaður Framsóknarfélags Garðabæjar 1988 til 1991. Einar Geir sat í miðstjórn Framsóknarflokksins í fimm ár.

Í minningargrein í Morgunblaðinu segir Þorsteinn Guðnason:

„Einar Geir er fæddur og alinn upp á Vatnsleysu í Biskupstungum, hann var eitt níu barna Þorsteins og Ágústu á Vatnsleysu. Einar Geir gegndi ýmsum störfum um ævina, oftast stjórnunarstöðum. Einar Geir var formaður Fóstbræðra um árabil. Undir hans forystu varð viðsnúningur í starfi Fóstbræðra í félagslegu og listrænu tilliti. Í formannstíð hans var félagsheimili Fóstbræðra við Langholtsveg byggt og grunnur lagður að listrænni velgengni kórsins.“

Í minningargrein í Morgunblaðinu segir Einar Örn Ólafsson:

„Einar Geir var um margt leiðtogi. Hann var bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, í því mikla vígi flokksins – Garðabæ – árin 1978 til 1990, formaður Karlakórsins Fóstbræðra árin 1969-1974 og hann stjórnaði fjöldasöng í Tungnaréttum allar götur frá andláti föður síns árið 1974 og þar til í fyrra. Að auki gegndi hann ýmsum öðrum trúnaðarstörfum, einkum á vettvangi kóra og Framsóknarflokksins.“