Einar dásamar Össa: „Flottasti gaurinn í borginni okkar"

Einnota grímur eru orðnar fyrirferðarmiklar í sorpi landsmanna á meðan kórónuveirufaraldurinn geisar. Grímurnar valda margskonar hausverk fyrir þá aðila sem taka á móti sorpinu en meðal annars hefur Sorpa bs. mælt með því að teygjurnar séu klipptar á grímunum áður en þær eru látnar í ruslið.

Því miður hefur borið talsvert á því að grímurnar endi ekki í ruslatunnum heldur fjúki um götur og náttúru landsins.

Einar Bárðason hefur vakið mikla athygli á plokki, sem snýst um að fara út með poka í hönd og týna upp smálegt rusl hvar sem fólk kemur auga á slíka aðskotahluti.

Fjölmargir eru farnir að láta til sín taka í plokki og einn af þeim er Örlygur Sigurjónsson sem að hefur farið mikinn undanfarið. Ljóst er að Einar er þakklátur með framtak félaga síns.

„ÖSSI ER BÚINN AÐ TÍNA 1290 GRÍMUR UPPÚR JÖRÐINNI Á ÞESSU ÁR. ÞETTA ERU OKKAR GRÍMUR!“ segir Einar með áherslu í færslu á Facebook-síðu sinni sem hefur vakið mikla athygli.


„Flottasti gaurinn í borginni okkar er Örlygur Sigurjónsson (MT Orsis) á Facebook grúppuni okkar Plokk á Íslandi Allt þetta ár hefur hann verið að plokka og það fer mikið fyrir einnota grímunum. GÆTTU AÐ GRÍMUNNI. Það er engin þarna úti sem hendir grímu viljandi. Þetta fýkur útúr bílunum okkar þegar margar hurðir eru opnaðar í einu í miklu roki. Þær fara óvart upp úr vösunum okkar þegar við sækjum símann eða lyklanna í vasann og þær fjúka uppúr Rusl-ruslatunnunum á ljósastaurunum fyrir utan stórverslanir og markaði þegar við pössum ekki að þær fari nógu djúpt til að fjúka ekki uppúr - Ég segi það, þetta eru ekki grímur hálfvitana, þetta eru grímurnar okkar og við verðum að gera betur! ," segir Einar og ljóst er að skilaboðin eru þörf.

„Verum eins og Örlygur. Fáum okkur græna plokku og gerum betur“ segir Einar og deilir meðfylgjandi myndum sem Örlygur hefur tekið.

Gríma1.jpg

Mynd / Örlygur Sigurjónsson

Gríma2.jpg

Mynd / Örlygur Sigurjónsson

Gríma3.jpg

Mynd / Örlygur Sigurjónsson

ÖSSI ER BÚINN AÐ TÍNA 1290 GRÍMUR UPPÚR JÖRÐINNI Á ÞESSU ÁR. ÞETTA ERU OKKAR GRÍMUR! Flottasti gaurinn í borginni okkar...

Posted by Einar Bardarson on Föstudagur, 15. janúar 2021