Barnalæknirinn Einar Þór Hafberg fer hörðum orðum um Stefán Einar Stefánsson, viðskiptaritstjóra Morgunblaðsins, og beinir hann gagnrýni sinni einnig að Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra og Sigríði Andersen, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, vegna ummæla um Landspítalann og Covid-19. Ekki liggur fyrir nákvæmlega Einar er að gagnrýna í færslu á Facebook, en það er augljóst að honum er mikið niðri fyrir:
„Nei sko, , RITSTJÓRINN kemur enn og aftur fram á á sviðið með sína frábæru reikningsgetu til að verja hagsmuni; hverja, amk er vanvitinn Bjarni honum sammála, þ.a. Þetta hlýtur að vera bona fide. Gaman að sjá tvo fávíta með háskólapróf auglýsa sína fávisku. En hvað um það hræsni RITSTJÓRANS er slík að anerobic lífvera myndi kafna í því súrefni er hann lifir í. Svo hefur RITSTJÓRINN þá dirfsku að,sýna myndir af afkvæmimum sínum og djöflast á þeim er eru að vernda þau. Því líkur hræsnara. Þvílíkur siðfræðingur. Það að þurfa að svara þessari fávisku, við sem erum að sjá um börn, sem ekkert hafa gert til að verðskulda fávisku RITSTJÓRANS, og þingkonu Andersen er nátturlega algjörlega fáránlegt. Því vona ég að Ritstjórinnog hans “ilk” þurfi ekki að svara afleiðingu gjörða/skrifa sinna.“
Stefán Einar gerir þetta innlegg Einars að umtalsefni í færslu á Facebook og birtir skjáskot af því. Hann segist hafa haldið uppi gagnrýni á stjórnvöld fyrir sóttvarnaaðgerðir undanfarið og stuðst þar við töluleg gögn frá Landspítalanum. Svo virðist hins vegar að skoðanaskipti um þessi mál séu óleyfileg í augum heilbrigðisyfirvalda.
„Á síðustu mánuðum hef ég haldið uppi gagnrýni á stjórnvöld fyrir aðgerðir sem gripið hefur verið til í tengslum við útbreiðslu kórónuveirunnar. Þar hef ég m.a. vísað í tölfræði eins og þá sem tekin er saman af Landspítala um hlutfall þeirra sem veikjast mikið og lítið af völdum veirunnar. Allt eru þetta tölur sem kenna okkur að takast á við faraldurinn en gefur okkur einnig tækifæri til að ræða og gagnrýna það sem gert er,“ segir Stefán Einar.
„En fólk má ekki hafa skoðun á þessu að mati heilbrigðisyfirvalda. Þórólfur hefur beðið fjölmiðla um að halda ekki uppi gagnrýni á aðgerðir Landspítala svo dæmi sé tekið – rökin eru þau að spítalinn einn viti hvað gera skuli!“
Stefán Einar segir að Einar sé einn þeirra sem þoli ekki gagnrýnina.
„Hér má sjá hvernig hann, líkt og margir aðrir hafa kosið að haga málflutningi sínum vegna þeirra skoðana sem ég hef haldið fram. Dæmi nú hver fyrir sig hvort þetta haldi vatni?,“ spyr Stefán:
„Þarna sést að þetta snýst ekki lengur um rétt og rangt, staðreyndir eða hégiljur. Þetta snýst um að fólk eigi að hlýða (ekki bara Víði heldur liði eins og Einari). Þeir sem það gera ekki eru teknir niður og börnum þeirra meira að segja blandað inn í umræðuna (smekklegt af sjálfum barnalækninum).
Nú þarf almenningur að átta sig á hvernig í pottinn er búið með þessa umræðu alla. Fáir sýna jafn skýrt á spilin og hugprúði nafni minn. En dæmin um framgöngu sem þessa eru því miður of mörg.“