Einar bárðar svarar kára stefánssyni

Nú gengur um samfélagsmiðla grein Kára Stefánssonar úr Fréttablaðinu í dag og fólk deilir henni til staðfestingar um það að samfélagið sé að fara til andskotans og það sé Bjarna Benediktssyni að kenna. Ég las nú í gegnum þessa grein í morgun og þekki til þeirra mála sem hann þræðir í gegnum nema þeim fjórða þætti þar sem Kári fullyrðir að Bjarni og allir meira og minna sem eru skildir honum hampi einkaleyfi á akstri til og frá Leifsstöð.

Staðreyndin í því máli ... ef einhver hefur áhuga á staðreyndum í þessu samhengi, er sú að það er ekkert einkaleyfi á rútuferðum milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur, tvö fyrirtæki keyra þá leið. Það var svo Bjarni Benediktsson (sem fjármálaráðherra) sem færði þessi fyrirtæki og önnur sambærileg undir virðisaukakerfið en alla tíð áður voru rútufyrirtæki undanþegin vaski. Það er ekki ein fullyrðing sem stenst hjá Kára í þessum fjórða tölulið greinarinnar.

Þannig dreg ég þá ályktun að restin af greinini geti tæplega talist ábyggileg. Mér finnst þetta afar dapurlegt hjá Kára karlinum. Hann hefur nú sjálfur ekkert verið sérstakur happafengur fyrir sparifé íslendinga en það bannar honum þó ekki að hafa einkennilegar skoðanir.

Sjálfur vinn ég ekki lengur hjá Reykjavík Excurssion og enga \"hagsmuni\" að verja en það er ekki hægt að horfa uppá svona skrif því þetta er ekki mismun túlkun eða smekksatriði heldur allger vitleysa.

Það er víða pottur brotinn í okkar samfélagi og af nógu að taka en við skulum ekki vera hlaupa á eftir einhverju sem á sér enga stoð í raunveruleikanum.