Einangrun íslands minni en við héldum

Ísland var klárlega ekki eins einangruð eyja og Íslendingar hafa löngum haldið, að mati sagnfræðinganna Guðmundar Jónssonar og Helga Þorlákssonar sem eru gestir Sagnastundar á Hringbraut í kvöld.

Tilefnið er útkoma bókarinnar Líftaug landsins, sem fjallar um sögu íslenskrar utanlandsverslunar frá 900 til 2010, eða eins og gárungarnir hafa orðað það, frá Ingólfi Arnarsyni til Jóns Ásgeirs.

Guðmundur og Helgi fara yfir þessa löngu sögu í þættinum og varpa ljósi á hvað verslunarferðir til og frá landinu voru í raun margar og merkilegar í aldanna rás og sýna öðru fremur að Ísland var kannski ekki sú afskekkta eyja úti í Ballarhafi eins og landsmönnum hefur einatt fundist.

Þá vekur athygli hvað utanlandsverslun Íslendinga er öldum saman frábrugðin millríkjaverslun nágrannaþjóðanna, en þar hafa Spánn og önnur suðræn lönd skipt sköpum, að ekki sé talað um Rússland lengst af síðustu öld sem hreinlega bjargaði fjárhag landsmanna þegar Bretar lokuðu fyrir innflutning frá Íslandi í þorskastríðunum.

Sögustund hefst klukkan 21:00 í kvöld í umsjá Lindu Blöndal og Sigmundar Ernis.