Eina í stöðunni: vg og íhaldið

Það er engin tæpitunga töluð í Ritstjóraþætti kvöldsins þar sem hvín í tálknum þeirra Eggerts Skúlasonar, fyrrverandi ritstjóra DV og Gunnars Smára Egilssonar, fyrrverandi ritstjóra Fréttatímans.

Ástæða falls stjórnarinnar, þar sem sitt sýnist hverjum, er til umræðu í fyrri hluta þáttarins og eins það hvort Bjarni Benediktsson og Sigríður Andersen lifi málið pólitískt af; Eggert heldur svo vera í tilviki beggja, en að Bjarni vilji samt hætta, Gunnar Smári segr þau bæði stórsködduð - og að maður sem komist ekki lengur á milli mánaða án skandala hafi ekkert lengur að gera í stjórnmáluml.

En hvað tekur við? Glundroði að mati Gunnars Smára, enda muni það sama endurtaka sig eftir næstu kosningar og gerðist eftir þær síðustu - og tiltölulega nýafstöðnu; pólitíkin hangi áfram í lausu lofti og endurspegli engan veginn vilja fólksins, sem vilji betra heilbrigðiskerfi og úrbætur í húsnæðismálum, eitthvað sem Alþingi hafi hundsað.

Eggert telur einboðið að VG og íhaldið fari saman í tveggja flokka stjórn og fái til þess fylgi, það sé kominn tími til að tengja stjórnmálin yfir miðjuna, en Gunnar Smári telur þetta af og frá, baklandið í VG fái grænar bólur yfir gamla hagsmunaflokknum og geti ekki hugsað sér að starfa með Bjarna og kó.

Ritstjóraþátturinn, einn sá hressasti í haust, hefst klukkan 21:00 í kvöld.