Hrafnhildur Lúthersdóttir sundkona var sú eina sem vann til verðlauna í fleiri en einni grein í bringusundinu á Evrópumeistaramótinu í fimmtíu metra laug.
Þær, sem hún barðist við um sigur í keppnunum, komust hver og ein einungis einu sinni á verðlaunapall, en Hrafnhildur steig þrisvar á verðlaunapallinn.
Viðtal við Hrafnhildi er að finna á heimasíðu Hringbrautar, hringbraut.is.