Það fór þó aldrei svo að fullkomin samstaða næðist á Alþingi um eina málið á vorþingi sem átti að vera fullkomin sátt um; ein þingkona Sjálfstæðisflokksins reyndist vera á móti málinu þegar til atkvæðageiðslu kom í dag.
Það var varaþingkonan Sigríður Andersen sem kom í veg fyrir fullnaðarsátt um þingsályktunartillöguna um Jafnréttissjóð sem átti að vera einskonar gjöf þingsins til þjóðarinnar í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna í dag. Í tillögunni, sem forsætisráðherra lagði fram, er gert ráð fyrir að 100 milljónri renni til sjóðsins ár hvert og að hann verði notaður til að efla jafnrétt innan stjórnkerfisins og víðar á næstu árum.
Sigríður sagði þingsályktunartillöguna vera vonbrigði og ekkert annað en „enn eitt ríkisútgjaldamálið. Í tillögunni væri lagt til að verulega háum fjármunum sé deilt út með afar ómarkvissum hætti í ýmis verkefni sem þarna eru talin upp á sama tíma og fjármuni vanti í mörg nauðsynleg verkefni sem hún þykist vita til að þverpólitísk samstaða sé um að ráðast í.
Tillagan var samþykkt með 61 atkvæði, Sigríður var á móti og Höskuldur Þórhallsson var fjarverandi. Formenn allra stjórnmálaflokkanna stóðu að þingsályktunartillögunni. Aðeins konur tóku til máls í umræðunum í dag. Þórunn Egilsdóttir hélt ræðu fyrir hönd Framsóknarflokksins, Katrín Júlíusdóttir fyrir Samfylkinguna, Katrín Jakobsdóttir fyrir VG, Hanna Birna Kristjánsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Björt Ólafsdóttir fyrir Bjarta framtíð og Birgitta Jónsdóttir fyrir Pírata.