Ein stærsta atvinnugreinin hunsuð

Listir njóta ekki sannmælis; ekki sem skapandi vísindi, ekki sem fræðasvið, ekki sem atvinnugrein eða sem forsenda nýsköpunar, segir Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands. Þessi orð lét hún falla við útskrift nemenda við háskólann í upphafi sumars. Listin, umfram önnur vísindi er byggja á glímu hugaraflsins við raunveruleika mannskepnunnar, er því eitthvert sterkasta mótunarafl heimssögunnar. Í listinni geymum við andrými hvers tíma; menninguna og mennskuna, segir Fríða Björk ennfremur.

Hún bendir á að fjöldi þeirra sem vinna við skapandi atvinnugreinar hér á landi sé á milli 15 til 20 þúsund og á þeim byggi margar aðrar atvinnugreinar afkomu sína, s.s. ferðaþjónustan.

Fríða Björk verður gestur á tíunda tímanum á Hringbraut í kvöld.