Ein og hálf milljón fyrir nóttina

Fram komi í máli Gríms Sæmundsen, forstjóra Bláa lónsins á fundi Viðskipta­klúbb­s Morg­un­blaðsins í morgun að mikill fjöldi mjög efnaðra ferðamanna komi til Íslands og sum­ir bein­lín­is í þeim til­gangi að sækja Bláa lónið heim. Alls komu 1,3, milljónir ferðamanna í fyrra í lónið.

Árið 2011 var mikið örlagaár, sagði Grímur en þá setti tíma­ritið Nati­onal Geograp­hic Bláa lónið á lista yfir 25 und­ur ver­ald­ar.

Þann 1. apríl síðastliðinn opnaði Bláa lónið nýtt lúx­us­hót­el við lónið.  Herbergin eru frá 40 til 200 fermetrar að stærð og svítur í boði.

Verðið fer eitthvað eft­ir því hvenær fólk á leið til lands­ins en al­gengt verð fyr­ir svítu er um 350 til 400 þúsund krón­ur nótt­in. Stóra svít­an kost­ar svo um eina og hálfa millj­ón sól­ar­hring­ur­inn,“

 Viðskiptaklúbbur Morgunblaðsisn og mbl.is stóð fyr­ir morg­un­verðar­fundi í morgun, fimmtudag þar sem Grím­ur , for­stjóri Bláa lóns­ins, var sér­stak­ur gest­ur.