Búið er að breyta vitanum í Dyrhólaey í hótel og kostar nóttin þar með morgunverði 220 þúsund krónur. Bókanir hafa gengið þokkalega að sögn Sigurðar Elíasar Guðmundssonar hótelstjóra á Icelandair Hótel Vík sem annast rekstur vitans.
Rætt er við Sigurð í DV í dag um þetta óvenjulega hótel sem státar af einhverju tilkomumesta útsýni sem hægt er að hugsa sér út úr nokkrum hótelgluga: \"Eins og með allt nýtt sem er að byrja,\" segir Sigurður \"þá tekur tíma að koma því í réttan farveg. Það hefur heilmikil kynningarvinna átt sér stað til að koma þessu á framfæri.\"
Rekstur hótelsins er liður í samstarfsverkefninu Incredible Stopover sem Íslenska auglýsingastofan heldur utan um fyrir Icelandair Hotels.
Vitinn, sem reistur var 1927, er á þremur hæðum og þar eru þrjú herbergi á annarri og þriðju hæð. Þau hafa verið innréttuð sem lúxus-herbergi - og kosta sitt, sem fyrr segir - og raunar mun meira en aðrar dýrar svítur á landinu, en til samanburðar kostar nóttin á Master-svítu á Hótel Rangá 129 þúsund krónur með mat og nuddi.
Verðið fyrir eina nótt í vitanum er án matar en hægt er að panta einkakokk frá Vík sem matreiðir dýrindismat ofan í gesti vitans.