Ein kona fyrir borð

Fái Sjálfstæðisflokkurinn sambærilega kosningu nú og hann fékk 2013 verða litlar breytingar á kynjahlutfalli í þingflokknum. Nú eru þar sjö konur en verða sex verði úrslitin nú þau sömu og var 2013.

Sjálfstæðisflokkurinn er nú með tvo þingmenn í Norðvesturkjördæmi. Fái flokkurinn aftur tvo þingmenn þar, verða það þau Haraldur Benediktson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Flokkurinn hefur tvo þingmenn í Norðausturkjördæmi og svo verður áfram munu það verða Kristján Þór Júlíusson og Njáll Trausti Friðbertsson. Valgerður Gunnarsdóttir þingmaður náði ekki öðru sæti, sem hún sat í áður.

Í Suðurkjördæmi á Sjálfstæðisflokkurinn fjóra þingmenn og verði svo áfram verða það þau Páll Magnússon, Ásmundur Friðriksson, Vilhjálmur Árnason  og Ragnheiður Elín Árnadóttir. Unnur Brá félli af þingi.

Í Kraganum eru fimm þingmenn frá Sjálfstæðisflokki. Haldist það svo verða þingmenn flokksins í kjördæminu; Bjarni Benediktsson, Jón Gunnarsson, Óli Björn Kárason, Vilhjálmur Bjarnason og Karen Elísabet Halldórsdóttir.

Í Reykjavík eru sex þingmenn frá Sjálfstæðisflokki og haldist það óbreytt verða þingmenn flokksins í Reykjavík að loknum kosningum: Ólöf Nordal, Guðlaugur Þór Þórðarson, Brynjar Níelsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Sigríður Á. Andersen og Birgir Ármannsson.

Reyndar er staðan í dag sú sama og 2013. Þá voru þrettán karlar og sex konur í þingflokknum. Eftir andlát Péturs Blöndal tók Sigríður Á. Andersen sæti á þingi og þá breyttist kynjahlutfallið aðeins.