Lífeyrissjóðir eru hagstæðustu lánveitendur á húsnæðismarkaði í dag samkvæmt samanburði á vefnum herborg.is sem Björn Brynjúlfur Björnsson, hagfræðingur stofnaði til að auðvelda samanburð lánakosta við húsnæðiskaup. Björn Brynjúlfur opnaði nýlega vefsíðuna www.herborg.is
Björn Brynjúlfur er viðmælandi Hafliða Helgasonar í Markaðstorginu í kvöld. Hann segir að taka verði tillit til þess að lífeyrissjóðir geri kröfu um hærra eigið fé kaup sem taka verði tillit til við samanburð. Björn Brynjúlfur bendir á að til að geta tekið lán hjá lífeyrissjóðum sé nóg að vera sjóðfélagi, en menn verði félagar við fyrstu innborgun hvort sem um sé að ræða almennan lífeyrissjóð eða séreignasparnað.
Í þættinum er einnig rætt við Jón Ágúst Þorsteinsson forstjóra Klappa, Grænnal Lausna hf, en viðskipti hófust með bréf fyrirtækisins á Nasdaq First North makraðnum í kauphöllinni í síðustu viku. Fyrirtækið er einstakt í sinni röð með heildarhugbúnaðarlausnum fyrir umhverfismál fyrirtækja og stofnana. Jón Ágúst er með áratugareynslu af frumkvöðlastarfi, sérstaklega að sviði orkusparnaðar og umhverfismála. Hann er áhugamaður um að almenningur fái tækifæri til að taka þátt með beinum hætti í uppbygginu nýsköpunarfyrirtækja.