Eik með sána-tunnu í bakgarðinum: finnur mikinn mun á líðan og heilsu – sjáðu allan þáttinn

Sjöfn Þórðardóttir fékk til sín góða gesti í þættinum Fasteignir og heimili síðastliðið mánudagskvöld. Í þættinum heimsótti Sjöfn þau Albert Eiríksson matarbloggara og sælkera með meiru og Eik Gísladóttur lífskúnstner. Hér neðst í umfjölluninni er hægt að horfa á þáttinn í heild sinni.

Sána í garðinum eykur lífsgæðin

Sjöfn heimsótti Eik Gísladóttur lífskúnstner sem hefur mikinn áhuga á að hugsa vel um líkama og sál. Eitt af því sem Eik hefur gert til að hugsa enn betur um heilsuna er að fá sér sána-tunnu í bakgarðinn sem hægt er að nota allan ársins hring.

Eik segir að hún finni mun á líðan og heilsu við notkun á sána-tunnunni og bestu gæðastundir fjölskyldunnar séu í tunnunni. Þau viti fátt betra en að slaka í sána við dagslok. 

Sjöfn fékk að kíkja í sána-tunnuna til Eikar og kynnti sér kosti þess að vera með sána heima í garðinum sér til heilsubótar og vellíðunar.

Þátturinn Fasteignir og heimili er á dagskrá öll mánudagskvöld kl. 20:30 á Hringbraut - og jafnan ferskur, fjölbreyttur og með persónulegum blæ.

Heimboð í Sólskinstertu sem boðar komu sumarsins

Albert Eiríksson matarbloggari og fagurkeri með meiru bauð Sjöfn í heimsókn á Lindargötuna í tilefni komu sumarsins og bauð upp á Sólskinstertu sem er einungis bökuð einu sinni ári. Hefð hefur verið í fjölskyldu Alberts í áranna rás að baka Sólskinstertuna á sumardaginn fyrsta og mikil tilhlökkun er alltaf á meðal heimilisfólksins að fá að gæða sér á þessari guðdómlegu tertu, með löðrandi ljúffengu karamellu kremi.

Albert og Sjöfn ræddu um mikilvægi þess að halda í góðar hefðir og siði og ekki síst að búa til nýja siði fyrir yngri kynslóðina.