Eigum ekki að blakta í vindinum

„Ég vil að við séum staðföst í stefnu okkar, ekki að við séum að blakta í vindi til að ná einhverju fylgi“, segir Oddný G Harðardóttir nýr formaður Samfylkingarinnar í viðtali á Hringbraut klukkan 21 í kvöld.

Við viljum fyrst og fremst réttlæti og tækifæri fyrir alla og aðal áherslan er á velferðarmál og til að mynda viljum við gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu. Oddný segir að flokkurinn þurfi núna að kynna stefnu sína og með henni muni fylgið aukast, þannig geti Samfylkingin rétt úr kútnum. Flokkurinn mælist með 7 prósenta fylgi en hefur undanfarið verið með um 10 prósent. Oddný sagði að formannsskiptin muni ekki breyta áherslum eða flokknum. Enn sé þetta jafnaðarmannaflokkur, vinstra megin við miðju. Hins vegar kunni hún ekki þann „samkvæmisleik“ að tala um vinstri eða hægri áherslur innan flokksins. Allt séu þetta einfaldlega jafnaðarmenn. Oddný segir að sameining við aðra vinstri flokka  ekki á dagskrá, eins og meðframbjóðandi hennar Magnús Orri Schram lagði til fyrir skömmu.