Eigum að fullnýta fiskinn

Þór Sigfússon stofnandi Sjávarklasans segir að það sé ekki í eðli Íslendinga að sætta sig við stöðnun og það sé full ástæða til að stefna að algerri fullnýtingu fisks hér á landi í nánustu framtíð. Miklar framfarir hafa þó orðið í þeim efnum, það er, að fullnýta afturðir sjávar í öllu mögulegu formi, bæði til almenns yndisauka en ekki síður til aukinnar heilsu og hollustu.