Eignir lykilmanna putins frystar í usa

Bandaríkin ákváðu í dag að frysta eignir sjö rússneskra auðmanna, þar á meðal lykilstuðningsmanna Vlaimirs Putins Rússlandsforseta. Auk þess verða 17 rússneskir embættismenn beittir refsiaðgerðum, svo og 12 fyrirtæki í eigu auðmannanna, vopnaútflutningsfyrirtæki rússneska ríkisins og einn banki.

Meðal óligarka sem þurfa að þola eignafrystingu er Oleg Deripaska, ál-milljarðamæringurinn, sem hafði tengsl við Paul Manafort, fyrrum kosningastjóra Trumps. Í hópnum er líka Alexei Miller, forstjóri rússneska ríkisorkufyrirtækisins Gazprom.

Samkvæmt heimildum í bandaríska stjórnkerfinu er gripið til refsiaðgerðanna vegna ýmis konar illvirkja Rússa á alþjóðasviðinu: innlimunar Rússa á Krímskaga, stuðnings við Assad, forseta Sýrlands og vegna nethernaðar.

Fyrst og fremst er verið að refsa Rússum fyrir aðgerðir þeirra til að hafa áhrif á ksoningar og grafa þannig undan lýðræðisskipulagi vesturveldanna.

Refsiaðgerðirnar koma í kjölfar brottvísunnar 60 rússneskra diplómata frá Bandaríkjunum sem Rússar svöruðu með brottvísun 60 bandarískra sendiráðsstarfsmanna frá Rússlandi og lokun ræðisskrifstofu Bandaríkjanna í Sankti Pétursborg.

Fjöldi Evrópuríkja vísaði sömuleiðis sendiráðsstarfsmönnum úr landi eftir taugaeitursárásina í Salisbury.