Upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar hefur staðfest við fjölmiðla að félag eiginkonu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sé skráð á Bresku Jómfrúareyjunum, það er á Tortola. Félagið er stofnað utan um miklar eignir og ávöxtun þeirra með milligöngu bresks félags. Ein ástæða þess að eignin hefur ávaxtast mjög frá hruni er gengisfall íslensku krónunnar.
Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiginkona forsætisráðherra, upplýsti á eigin fésbókarfærslu í gær að hún ætti þetta félag. Mikil viðbrögð hafa orðið við upplýsingunum í dag og hefur m.a. verið bent á þversögn í málflutningi forsætisráðherra um eiginleika íslensks viðskiptalífs og að ávöxtun fjármuna eigi sér stað utan landsteinanna.
Kjarninn greinir frá því að félagið, Wintris sé í fjárstýringu hjá Credit Suisse í Bretlandi. Félagið sé í 100 prósent eigu Önnu Sigurlaugar þrátt fyrir að það hafi um tíma verið skráð í helmingseigu Sigmundar Davíðs hjá bankanum.
Fram kemur hjá Kjarnanum að fjölmiðilinn hafi ítrekað beint fyrirspurnum til Sigurðar Más Jónssonar, upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar, þar sem óskað hefur verið eftir upplýsingum um hvort ráðherrar í ríkisstjórn Íslands, eða fjölskyldur þeirra, eigi eignir erlendis.
Hinn 15. mars 2015, fyrir rúmlega ári, voru fyrirspurnir sendar til upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar þar sem fyrrnefnd fyrirspurn var borin upp. Sá sem svaraði fyrir hönd forsætisráðuneytisins, var Ágúst Geir Ágústsson, skrifstofustjóri. Hann neitaði að svara fyrirspurninni, og sagði það ekki í verkahring forsætisráðuneytsins að gera það, og lög krefðust þess ekki.\"
Fyrirspurnin var ítrekuð í nokkur skipti, eftir að eftirgrennslan ritstjórnar benti til þess að ráðherrar í ríkisstjórn Íslands ættu hugsanlega eignir erlendis, sem hvergi hefði verið greint frá. Fyrirspurnir Kjarnans báru ekki árangur.
Einnig segir í úttekt Kjarnans: \"Í lok árs 2014, rúmum sex árum eftir bankahrun og setningu gjaldeyrishafta, áttu íslenskir aðilar 31,6 milljarða króna á Bresku Jómfrúareyjunum, nánar tiltekið á Tortóla-eyju klasans. Bein fjármunaeign Íslendinga þar hefur aukist mikið frá því fyrir hrun, en í árslok 2007 áttu Íslendingar 8,6 milljarða króna á eyjunum. Gengisfall krónunnar skýrir aukninguna að einhverju leyti.\"
Fyrr í dag benti Hringbraut á að samkvæmt skráningu á vefsíðu Alþingis kæmi fram að Sigmundur Davíð hefði enga viðskiptatengda hagsmuni skráða en spurningar hafa kviknað um pólitíska aðkomu hans að ýmsum málum og vanhæfi í ljósi þess sem nú er komið fram. Samkvæmt reglum ber þingmanni ekki að upplýsa um félög í eigu maka.