\"Vegna vaxandi umræðu um sölu eigna ríkisins er rétt að minna á að núverandi ríkisstjórn hefur ekki staðið fyrir sölu nokkurrar einustu eignar,\" skrifar Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra á fésbók sína í dag.
Tilefnið er væntanlega ótti stjórnarandstæðinga, svo og sumra stjórnarliða úr framsókn að ríkið selji eignir sínar, ef til vill á útsölu eins og nýleg dæmi sanna. Bjarni segir í tilskrifi sínu að það séu aftur á móti engin dæmi um annað eins framsal eigna til ríkisins og átt hefur sér stað síðastliðna mánuði: \"Eignir hafa verið afhentar/framseldar ríkinu upp á hundruð milljarða að undanförnu. Tekjufærslan í fjárlögum þessa árs er rétt um 350 milljarðar.\"
Hann beinir opinberri gagnrýni um sölutilburði stjórnvalda til föðurhúsanna: \"Þeir sem afhentu kröfuhöfum yfirráð bankanna og sögðu Íslendinga þurfa að ganga í ESB og taka evrulán til að leysa þann hnút og lyfta gjaldeyrishöftumí framhaldinu ættu að gera þá sorgarsögu almennilega upp en hafa sig í millitíðinni hæga í yfirlýsingum um það hvernig best er haldið á hagsmunum landsmanna,\" skrifar Bjarni á fésbók sína í dag.