Eignatjónið einna mest í eyjum

Talsvert eignatjón varð af völdum ofsaveðursins sem gekk yfir landið í gærkvöld og nótt. Þar á meðal sukku tveir smábátar í Reykjavíkurhöfn en um tíma var útlit fyrir að mu fleiri bátar færu þar niður.

Einna verst var ástandið í Vestmannaeyjum í gærkvöld og nótt, en þar fauk þak af einu húsi í heilu lagi og skemmdir urðu nokkrar á öðrum húsum, einkum vegna foks á þakplötum, svo sem algengt var víða á landinu.

Í Eyjum varð og talsvert eignatjón á hafnarsvæðinu, en Elli Vignisson, bæjarstjóri í Eyjum metur það svo að verulegt eignatjón hafi orðið í bænum.

Til marks um veðurhaminn í Reykjavík má nefna að strætóskýli við Háaleitisbraut fauk í heilu lagi af grunni sínum.

Ekki er vitað um nokkur slys á fólki af völdum veðurhamsins.