Hæstaréttardómur beinir athygli að núgildandi leyfisferli. Nýgenginn dómur í Hæstarétti um eignarnámsheimild ráðherra til Landsnets vegna lagningar á raforkustrengjum til kílsilmálmverksmiðju á Bakka beinir athygli að nauðsyn þess að taka þarf núgildandi leyfisferli framkvæmda til gangerrar endurskoðunar.
Í þessu tiltekna máli sýnir það sig að kærumál geta sett verkefni óvænt í uppnám á síðustu metrunum eða þegar framkvæmdir eru komnar vel á veg. Tryggja þarf að ágreiningsmál séu leyst snemma í ferlinu og að kærur komi tímanlega fram svo úrskurða megi í deilumálum. Stuðla þarf að meiri skilvirkni. Það er hagur allra að lágmarka óvissu í framkvæmdum af hvaða toga sem þær eru.
Um þetta mál er fjallað á vef SI-Samtaka iðnaðarins.
rtá