Ellefu ára gömul stúlka í Paragvæ, sem var nauðgað af stjúpföður sínum, eignaðist stúlku í gær. Henni hafði verið synjað um fóstureyðingu af yfirvöldum í landinu. Barnið var tekið með keisaraskurði og heilsast móður og barni vel, samkvæmt frétt BBC.
Í Paragvæ, þar sem kaþólska kirkjan er afar sterk, eru fóstureyðingar ekki leyfðar nema líf móður sé í hættu. Fyrr á árinu lýsti heilbrigðisráðuneyti landsins því yfir að svo væri ekki í þessu tilviki og synjaði stúlkunni um fóstureyðingu. Stúlkan var tíu ára gömul þegar stjúpi hennar nauðgaði henni.
Sjúpfaðir hennar, sem er 42 ára að aldri, situr í gæsluvarðhaldi og bíður dóms. Hann neitar því að hafa brotið af sér. Móðir stúlkunnar hefur verið ákærð fyrir vanrækslu.