Eiginleg stjórnmál komast ekki að

Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor í stjórnmálafræði, verður gestur Þjóðbrautar í kvöld og talar þar um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.

Eiríkur segir vonbrigði hvernig baráttan milli þeirra hefur þróast og bendir á að varla sé tekist á um eiginleg stjórnmál. Hann segir Trump hafa komið herskáan til leiks í kappræðunum og tekist að draga Hillary niður í drullupyttinn.

Eiríkur segir marga þingmenn Repúblikana lýsi andstöðu við Trump til að auka möguleika sína til endurkjörs, þar sem þingkosningar verða samhliða forsetakosningunum.

Þjóðbraut er á dagskrá klukkan 21:00 í kvöld.