Eiginfé liggur í fasteign

Meginuppistaða eiginfjár einstaklinga liggur jafnan í fasteign. Meðaleign einstaklinga var rúmar tuttgu og fimm milljónir á árinu 2016. Meðalskuld var um níu milljónir.

Sé litið á breytingar á eignum og skuldum allt frá árinu 1998 má sjá að bæði eignir og skuldir jukust á hverju ári á fyrri hluta tímabilsins eða allt til ársins 2008 þegar eignir minnkuðu mikið.

Sé litið á samsetningu eiginfjár má sjá að mun meiri sveiflur hafa orðið á eigin fé í fasteign en í öðru fé. Eigið fé í fasteign jókst um næstum 130% á milli árana 1997 og 2007 á meðan eigið fé jókst um rúm 45%.

Stóra myndin er sú að þróun eigna og skulda einstaklinga hefur verið jákvæð allt frá árinu 2008 sé litið til meðaltals allra. Nýjar tölur benda til að ekki sé einsýnt að þessi hagstæða þróun eignastöðu heimilanna haldi áfram.

Nánar má lesa um þetta í Hagsjá Hagfræðideildar Landsbanka Íslands www.landsbankinn.is

[email protected]