Eigendur Ásmundarsalar létu nefndina vita af samtali lögreglumannanna

Reimar Pétursson, lögmaður eigenda Ásmundarsalar, lét nefnd um eftirlit með lögreglu vita af samtali lögreglumannanna þar sem þeir töluðu um „framapotara“ í Sjálfstæðisflokknum á vettvangi sölusýningar á Þorláksmessu í fyrra þar sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var viðstaddur. Þetta staðfesti Sigurbjörn Þorkelsson, annar eigandi Ásmundarsalar, við Stundina.

Samtalið var tekið upp á búkmyndavél lögreglumannanna. Taldi formaður nefndarinnar, Skúli Þór Gunnsteinsson, að ummælin fælu í sér fordóma. Bjarni hefur beðist afsökunar á sínum hlut í málinu en á þessum tíma voru sóttvarnaraðgerðir í gildi.

Lögmaður nefndarinnar segir að nefndin hefði ekki vitað af upptökunni ef ekki væri fyrir kvörtun Sigurbjörns og Heiðu Magnúsdóttur, hins eigandans. . „Nefndin hefði ekki haft vitneskju um ummælin ef henni hefði ekki borist sú kvörtun,“ segir í svarinu.